Tuesday, April 25, 2006

Monday, April 24, 2006

Hannes Hafstein

Hannes Hafstein var fífl !!!!!!

Tónlist

Tónlist er ópíum heiðingjans og extacy trúmannsins . Kannski klisja , en meiri sannleikur finnst ekki..

Slydda

Góðan dag .. í morgun var slyddusnjór á götum borgarinnar sem skiptir kannski ekki svo miklu máli í hinu stóra samhengi hlutanna. Hinsvegar er óráðsía og stjórnleysi í efnahagsmálum æpandi um þessar mundir. Þetta opinberast svo um munar þegar á móti blæs .. Gömul kenning um trúða og valdastóla virðist óhugnanlega nærri sanni...Íslendingar eru orðnir að athælgi um víða veröld og er sú leiðrétting kærkomin. Allavegana kærkomnari en hið mikla fall krónunnar.

Wednesday, April 12, 2006

Menningarfjósið

Rokland (bók) **** Einum þræði bók um þunglyndan menningarvita þjáðan af stórkostlegum ranghugmyndum. Berlínarmenntaður fyrrum nýbylgjurokkari sem kýs að lifa fábrotnu og einangruðu lífi á Króknum.Hann er rómantíker, og einsog títt er um slíka , uppskrúfar hann hið fjarlæga og óræða en forsmáir og fyrirlítur raunveruleikann og núið .. Návígi og tilbreytingarleysi smáskuðanna er þarna vel lýst ..I þessari bók eru kynntar til sögunnar ómetanlegar persónur og atburðarrásin er spennandi en um leið óhuggnanlega raunveruleg einhverskonar afhjúpun á hryllingi smáskuðalífsins . Dramatíkin í lokin er hinsvegar yfirdrifin og ósannfærandi . Krafturinn sem einkennir þessa bók dettur niður á síðustu metrunum og er það miður .. gæti kannski gert sig ef bókin yrði kvikmynduð en þá yrði að bæta í splatterinn. Blóði drifinn höfuðborg undir Slayer – How many people I can kill