Tuesday, October 28, 2008

Nú er frost á Flóni

Nú er frost á Flóni

Fíflin stýrðu þjóð

sökktu digrum sjóð

fár í jötunmóð

Eru í tómu tjóni

æða blind um sal

heimst er þeirra tal

Spinnegal!!!!!




Fólkið vann og vann

meðan Spilavítið brann

Á lýru Flónið spann

að yrkja Fíflið kann

Einsog Völvan spáði

Skip í fjöru rak

orðið ónýtt flak

með kúkinn uppá bak

mannsorpshrat!!!!

Guðjón steig á stokk

með sinn yfirviktarskrokk

hafði með sér kokk

............ drullusokk

Frjálslyndan!!!

Bender bað til Guðs

Örvast kraftur stuðs

Möller fékk sér snuss

Marteinn var í SUS

so was Geir!!!!


Þar bar Ásgeir að

Þrautavaran kvað

Í Iðnó Bjöggi oss bað

ekki að missa það

Heilatað!!!!!



Árni Johnsen leit svo við

heilsaði að sjómannasið

Hörð Torfa sló í kvið

Kolfinnu gaf grið

Stórmennið!!!!!

Grjóni bankastjóri

steig næst uppá vigt

sæll með skvapið þykkt

sem Icesave hafði tryggt

Gunnar Birgis var svo hér

það ekki líkar mér

hvað hann er orðinn sver

étur á við her

Bæjarstjórinn!!!!

Næst kom Jónína Ben

nautnaleg og pen

Með Bónusgrísargen

á heilanum er en.

Jóhannes!!!

Janus Karlsson (flutt á ársþingi vörubílstjóra 20. oktober s.l)

No comments: