Thursday, October 30, 2008

Wednesday, October 29, 2008

Aldrei má gleyma


The whole problem with the world is that fools and fanatics are always so certain of themselves, but wiser people so full of doubts.”-- Bertrand Russell (1872-1970), Welsh philosopher and reformer"And the one man that dares to tell the truth is called at once a lunatic and a fool." (Plato)"All truth passes through 3 stages. First, it is ridiculed. Second, it is violently opposed. Third, it is accepted as being self evident." Arthur Schopenhauer.

Tuesday, October 28, 2008

99 % minning

Þeir kölluðu hann 99 % rass.
Þar sem hann skrönglaði einsog vélarvana freygáta
um kaffihúsið ,, bjóðandi heimilisiðnað gegn staðgreiðslu..
“Má bjóða herranum ljóð á blaði fyrir lítið” sagði hann innvirðulega v
Og pírrði augun gegnum flöskubotnagleraugun ...
“ Eða er herrann kannski ekki fyrir ljóð”

Til Flokksins Kokksins Foringjans og Flónsins

Táli pretta illu ann
Aldrei dóma grundar
Máli réttu hallar hann
Hvergi sóma stundar

Stundar sóma hvergi hann
Hallar réttu máli
Grundar dóma aldrei ann
illu pretta táli

Látra-Björg ..

Afhverju ekki Svalbarði eða Tunglið

Hömlulaust hörmungarhaust
með leiðindaveðri ..

Hrokaskotinn þumbaraháttur er stærsta vandamál íslenskrar þjóðar ..

Nú er frost á Flóni

Nú er frost á Flóni

Fíflin stýrðu þjóð

sökktu digrum sjóð

fár í jötunmóð

Eru í tómu tjóni

æða blind um sal

heimst er þeirra tal

Spinnegal!!!!!




Fólkið vann og vann

meðan Spilavítið brann

Á lýru Flónið spann

að yrkja Fíflið kann

Einsog Völvan spáði

Skip í fjöru rak

orðið ónýtt flak

með kúkinn uppá bak

mannsorpshrat!!!!

Guðjón steig á stokk

með sinn yfirviktarskrokk

hafði með sér kokk

............ drullusokk

Frjálslyndan!!!

Bender bað til Guðs

Örvast kraftur stuðs

Möller fékk sér snuss

Marteinn var í SUS

so was Geir!!!!


Þar bar Ásgeir að

Þrautavaran kvað

Í Iðnó Bjöggi oss bað

ekki að missa það

Heilatað!!!!!



Árni Johnsen leit svo við

heilsaði að sjómannasið

Hörð Torfa sló í kvið

Kolfinnu gaf grið

Stórmennið!!!!!

Grjóni bankastjóri

steig næst uppá vigt

sæll með skvapið þykkt

sem Icesave hafði tryggt

Gunnar Birgis var svo hér

það ekki líkar mér

hvað hann er orðinn sver

étur á við her

Bæjarstjórinn!!!!

Næst kom Jónína Ben

nautnaleg og pen

Með Bónusgrísargen

á heilanum er en.

Jóhannes!!!

Janus Karlsson (flutt á ársþingi vörubílstjóra 20. oktober s.l)

VIð verðum að vanda okkur (ljóð)

Evruna strax .
Neitum að taka krónur fyrir vinnu okkar Krefjumst þess að fá útborgað í gjaldeyri .Dæmalausir átthagafjötrar og árið er 2008.

Krónan er gjaldmiðill dauðans .
Hún firrir okkur öllu verðskyni. Þannig getur hin heilandi hönd kapitalismanns komist upp með absúrt verðlag.
Hin heilandi hönd getur lika fellt gengið og þannig lækkað laun sauðanna með einu pennastriki . Meðan hægt er að leysa allar vitleysur með pennastrikum er ekki von á því að feilunum fækki. Þess vegna þarf að afskrifa pennastriksmöguleikann...
Það hlýtur að vera grundvallaratriði fyrir hið Nýja Ísland að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf hér á skeri .Það verður ekki gert með fiskveiðimiðuðu gengi .

Rök aftaníossa gegn upptöku Evru eru þau að íslenskt efnahagslíf sé ekki í fasa við efnahagsmuni stórþjóða Evrópu .
Þannig geti gengi Evru geti unnið á móti hagsmunum efnahagslífsins íslenska..
Þessu ber að svara..
Í fyrsta lagi fara hagsmunir íslensku atvinnuvegana ekki endilega saman . Gengi Evru á einhverjum tímapunkti getur komið einum atvinnuvegi vel meðan það hentar öðrum síður . Með margbrotnari atvinnustarfsemi ættum við í heildina að getað plummað okkur vel .einsog aðrar minni þjóðir innan Evrópusambandsins.Má þar nefna Norðurlöndin, Möltu og Lúxemborg sem dæmi . Hér eru gríðarleg tækifæri sem hingað til hafa verið fjötruð af Flóni Foringja og Flónastjórninni í gegnum asúrt gengi krónu , ofsagróðakröfu og flónsku græðgisbrjálæðingana í útrásinni...

Í öðru lagi getur Ísland ekki verið spilavíti lengur þó það sé bara vegna þeirra sem vilja halda lámarks sjálfvirðingu.

Sjálfstætt fólk

Ísland er Sumarhúsið.
Bjartur er Flokkurinn.
Útkjálkamennska þvergirðingsháttur skaðræðisforheimska útópíurómantík.
Burt með flokkinn , bæði úr ríkisstjórn og sveitastjórnum .
Látum ekki hálstauið glepja okkur.
Oft leynist bjáninn bakvið bindið
kjáninn bakvið lakkskóna
og vitfirringurinn bak við slaufuna.

Monday, October 27, 2008

Nú er heimdellan vonandi öll.

Þeir vildu leggja leggja niður íbúðalánasjóð og færa viðskipti hans í ginnungargap .. já í græðgis og græðishít ég endurtek græðishít prettprentsmiðunar …. Leggja niður sjóð sem nú er vonandi að koma í veg fyrir endanlegt hrun Flónsins.

Þeir vildu leggja niður Ruv eina fjölmiðilinn sem hægt var að gera kröfu til um að vera hlutlaus i í krosstengslasamfélaginu þeirra….

Þeir vildu leggja niður samkeppnistofnun vegna þess að hún væri óþörf .Hin alvitra eilíðarvél hins frjálsa markaðar og hinar frjálsu samkeppni myndi sjálf sjá um að allt færi eðlilega fram (ótrúleg útópía)..

Einkavæða Landsvirkjun ,, gullnámu í eigu almennings. gæti vel verið í eigu Breta núna í gegnum þjóðnýtta banka þeirra..
Þeir vildu leggja niður Ruv eina fjölmiðilinn sem hægt var að gera kröfu til um að vera hlutlaus i í krosstengslasamfélagi þeirra….

Þeir vildu leggja niður samkeppnistofnun vegna þess að hún væri óþörf , hin alvitra eilíðarvél hins frjálsa markaðar og hinar frjálsu samkeppni myndi sjálf sjá um að allt færi eðlilega fram (ótrúleg útópía)..


Lögðu niður Þjóðhagstofnun ( i einu geðveikiskastinu) og misstu þar með allan fókus á íslenskt efnahaglíf í hinu stóra samhengi ..

Mikil orka fór í að rífast um rekstrarform skóla og sjúkrahúsa.

Heimdellan hefur vonandi sagt sitt síðasta í baráttunni við velferðarþjóðfélagið eina farsælustu uppfinningu mannkynssögunar ..

Tuesday, March 25, 2008

Fílabeinsturninn sandkastalinn og glerhúsið

Fáráðir fjármálaspekúlantar hafa afsannað gildi sitt ..Fjármálakreppan skall á án þess að þeir hefðu minnstu hugmynd ( eða eigum viða segja að þeir hafi verið með hausinn upp í ......... á sér).. hví ættu þessu bárðar að geta séð fyrir um endalok vesældarinnar.

Það get ég ... hinn alvitri Afneytandi hins vegar ..

Góðir samlandar og annað málsmetandi sí-etandi pakk.. Hér með tilkynnist að krónukreppan er að baki . Féhirðar allra landa munu sameinast frá og með deginum í dag og keppast um krónuna og gengi hennar mun styrkjast hratt . Nú er lag að kaupa krónuna gjaldmiðil loddarans..

Thursday, January 24, 2008

Það snjóar

Hvernig við vorum sem börn og hvernig við erum í dag .
Við teljum okkur trú um að það verði
einhverjar persónustökkbreytingar
Eftir hvell unglinsáranna (manndóminn)
erum við
allt í einu orðnar nánast guðlegar verur ..
svo til óskeikular , alvitrar
fullar af hroka uppskafningsins
fullar af hráka upphafningarinnar.

Wednesday, January 23, 2008

Nýtt félag stofnað

Stofnað hefur verið félag aðstandenda kommúnista FAK (Com-anon) þetta eru systrasamtök FAA félags aðstandenda auðvaldra ( Cap-anon). Félögin tvo deila húsnæði við Hallveigarstíg 24 í Reykjavík og hafa sameiginlegan formann , Annþór Hafstað skipulagsfræðing..

Tuesday, January 15, 2008

Bacon

Sá heimildarmynd um myndlistarmanninn Francis Bacon á DR2 í fyrradag. Þvílíkur maður .. Er enn að ná mér eftir þennan vitnisburð.. Efast um að mynd verði sýnd hér á skeri enda maðurinn hættulega skarpur samkynhneigður klæðskiptingur keðjureykjandi alcahólisti alvarlega introvert og í bullandi Guðs-afneitun .. Hann málaði myndir sem settu allt annað á oddinn en fagurfræði fávísrar húsmóður í Grafarholti ( með allri virðingu fyrir þeim ).. Er endalaust að rekast á athyglisverðar heimildamyndir á evrópsku stöðvunum .. Hér á skeri sjást aðeins þreyttar myndir um gallagripina tvo þ.e náttúruna og mannslíkamann.